Dögun Þjónusta
Þegar andlát ber að höndum er margt sem huga þarf að. Þjónusta við aðstandendur er af skornum skammti sem hægt er að leita eftir. Margir vita ekki í hvorn fótinn á að stíga eða í raun hvernig veröldin snýr á tímum sorgar og söknuðar. Hvað á ég að gera, hvað er næst, hvað tekur svo við, er ég að gleyma einhverju? Þetta eru algengar spurningar sem leita í hugann þegar andlát ber að höndum.
• Eru einhver réttindi sem að aðstandendur eru að fara á mis við hjá td. lífeyrissjóðum, stéttarfélögum eða banka?
• Var viðkomandi líftryggður? Hvað með dánarbætur til barna eða maka?
Eitt er víst að það er enginn sem kemur og býður aðstandendum þá fjármuni eða aðra styrki sem að viðkomandi kann að eiga rétt á. Öll réttindi þarf að sækja á viðeigandi staði, fylla þarf út ýmis umsóknareyðublöð og skila inn til að sækja þann rétt. Oftast er þetta ekki það sem er efst á baugi hjá aðstandendum sem að upplifa missi.